Nú er komið að því að við förum að æfa oftar í viku. Við ætlum að æfa fjórum sinnum í viku í sumar. Æfingarnar verða sem hér segir:
Mánudagar 16:00-17:00 Týssheimili
Þriðjudagar 16:00-17:00 Týssheimili
Miðvikudagar 16:00-17:00 Týssheimili
Fimmtudagar 16:00-17:00 Týssheimili
Nýja æfingataflan tekur gildi n.k. mánudag, þ.e. mánudaginn 16. júní.
Ætlunin var að hafa æfingu á morgun, laugardaginn 14. júní, á sparkvellinum við Hamarsskólann en vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður það ekki hægt. Því verður næsta æfing á mánudaginn kl. 16:00.
Ég vil einnig biðja þá foreldra sem eiga eftir að máta galla á dætur sínar að fara sem fyrst niður í Axel Ó og máta og láta mig vita hvaða stærð þær þurfa á næstu æfingu til þess að ég geti skilað inn pöntuninni.
Þá er það ekki fleira að sinni.
Kveðja Sædís